Ýmislegt um risafurur og tímann

„Amma og afi. Tvö orð sem geta hughreyst mann eins og trúarbrögð, eins og risafura.“

Ég er tíu ára og allt leikur í lyndi. Borgirnar breyta ekki um nöfn meðan ég sef, járntjaldið heldur heiminum saman, ósonlagið kemst aldrei á forsíður blaða. Og nú hafa örlögin úthlutað mér löngu útlensku sumri í húsi afa og ömmu. Ævintýrin suða í loftinu, Tarzan og Léttfeti á næsta leiti. En það er kónguló undir rúminu og einhvers staðar í hverfinu leitar fáklædd kona að lyklinum að hliði himnaríkis.

Ýmislegt um risafurur og tímann er fjórða skáldsaga höfundar og kom fyrst út árið 2001. Hún var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Jón Kalman hefur sent frá sér þrettán skáldsögur, síðast Fjarvera þín er myrkur (2020) sem hlaut virt frönsk verðlaun Le Point og France Inter sem besta þýdda skáldsagan vorið 2022.

Jón Kalman Stefánsson

Bókin er meistaralega vel skrifuð, textinn rennur létt og ljóðrænt áfram. Hinn einkennandi stíll Kalmans er hvarvetna til staðar, landslagið lifnar við og speglar atburðarás og tilfinningar sögupersóna…

Rósa María Hjörvar

Bókmenntaborgin – um Sögu Ástu

* * * * *

Fimm stjörnur. Fullt hús.

Maríanna Clara Lúthersdóttir

Morgunblaðið – um Sögu Ástu

Á heildina litið er hér um að ræða stórgóða bók sem heldur lesandanum fram á síðustu blaðsíðu, textinn sjálfur er fallegur og rennur áreynslulaust áfram, frásagnarstíllinn er skemmtilegur og söguþráðurinn sjálfur er heillandi.

Andri M. Kristjánsson

Víðsjá – um Sögu Ástu

Pin It on Pinterest

Share This