No Results Found
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Haustið 1479 kemur kona norður yfir Kjöl og teymir hest undir gömlum manni. Skáldið Sveinn döggskór Þórðarson er kominn í Reynistaðarklaustur til að deyja. Þó ekki fyrr en hann hefur skrásett sannleikann um atburðina í Rifi, þegar Englendingar drápu Björn Þorleifsson, hirðstjóra konungs á Íslandi. Vígið kveikti ófriðarbál innanlands og utan, og kona Björns, Ólöf ríka Loftsdóttir, hefndi bónda síns svo grimmilega að sögur hafa gengið um það allar götur síðan.
En hvað af því er satt og hvað er logið, og hverjum leyfist að segja söguna?
Löngu síðar, á tímum samfélagsmiðla og örbylgjupizza, reynir sagnfræðingurinn Eyjólfur Úlfsson að endurheimta akademískan orðstír sinn eftir að hafa óvart eyðilagt ómetanlegt fornrit. Þær hrakfarir leiða hann til Kaupmannahafnar, þar sem hann rekur sig eftir ólíkindalegri slóð handrita og miðaldaklæða í átt að sannleikanum um atburðina í Rifi.
Fimmtánda öldin er öldin sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Hér stíga helstu persónur hennar ljóslifandi fram: riddarar og sjóræningjar, konungar, hirðstjórar og höfðingjar, en líka fólkið sem þjónaði þeim og reyndi að ávinna sér frelsi og frið á vægðarlausum upplausnartímum.
Vegur allrar veraldar – skálkasaga – er sjálfstætt framhald Hamingju þessa heims – riddarasögu, sem kom út 2022 og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Hún ólst upp á Akureyri, kaupmannsdóttir af ástríkri og samheldinni fjölskyldu. Um fermingu flutti hún til Reykjavíkur og fór að vinna á skrifstofu, eins og allar ungar stúlkur dreymdi um. Seinna lærði hún hjúkrun, því hún þráði að líkna hinum sjúku og vinna þjóð sinni gagn. Enn síðar gaf hún út tímarit og bjó til minjagripi með þurrkuðum blómum. Meðal ástvina sinna var hún alltaf kölluð Dúlla.
Í dag er nafn Jóhönnu Knudsen þó einkum þekkt vegna starfa hennar fyrir lögregluna á árum seinni heimsstyrjaldar jafnvel alræmt. Rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík hefur verið kölluð umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn varpa dökkum skugga yfir minningu hennar.
Þessi bók segir sögu Jóhönnu frá því hún fæddist á Papósi í Lóni árið 1897 og þar til hún lést fyrir aldur fram árið 1950. Hver var Dúlla Knudsen og úr hvaða umhverfi spratt hún? Hvernig varð hún sú manneskja og sú sögupersóna sem hún varð?
Nýlendugata 22, kjallari
Þrjár konur. Ein íbúð. Áratugir skilja þær að. Leyndarmál leiðir þær saman.
Lilja Kristjánsdóttir, blaðamaður á Dagblaðinu, starfar með fólki sem er svo ungt að það heldur að Helmut Kohl sé nýjasti rakspírinn frá Prada og Nirvana sé hugarástand sem fólk öðlast eftir jóga tíma yfir súrdeigsbrauði með avocado.
Þegar Lilja fær veður af því að hún sé líklegt fórnarlamb niðurskurðar tekur við upplausn í lífi hennar. Hver er hún ef hún er ekki Lilja Kristjánsdóttir, blaðamaður hjá Dagblaðinu?
Þegar Lilju er falið að fjalla um nýútkomna bók um þýska gyðingakonu sem fluttist til Íslands eftir heimsstyrjöldina síðari vakna með henni grunsemdir um að ekki sé allt sem sýnist.
Lilja telur sig í þann veginn að svipta hulunni af stærsta bókmenntahneyksli Íslandssögunnar. En getur verið að mislyndi skjalavörðurinn á Landsbókasafninu sé að spila með hana?
Allt sem við hefðum getað orðið er að hluta byggð á lífshlaupi Anniear Leifs, fyrstu eiginkonu tónskáldsins Jóns Leifs. Annie lagði allt í sölurnar svo að fremsta tónskáld Íslendinga mætti blómstra. Hún komst hins vegar að því að maður uppsker ekki alltaf eins og maður sáir.
Þrjátíu ár eru liðin síðan Greta yfirgaf Marchmont Hall og fallegar hæðirnar í Monmouthshire. Í aðdraganda jóla snýr hún loks aftur, í boði gamals vinar síns, Davids Marchmont, en Greta man ekki fyrri tengsl sín við húsið – það er afleiðing skelfilegs slyss sem hefur eyðilagt meira en tvo áratugi af lífi hennar. Á gönguferð um vetrarlandslagið rekst hún á gröf í skóginum og veðruð áletrunin nefnir aðeins að lítill drengur sé grafinn þar. Gröfin kveikir eitthvað djúpt innra með henni og með hjálp Davids byrjar hún að setja saman brot úr ekki aðeins eigin sögu, heldur einnig sögu dóttur sinnar, Chesku, sem var fórnarlamb hörmulegra aðstæðna sem hún réð ekki við. Og alls ekki engillinn sem hún virtist vera …
Englatréð er grípandi fjölskyldusaga um minningar, ást og von – saga sem nýtur sín best á löngum vetrarkvöldum.
Lucinda Riley er höfundur bókaflokksins um systurnar sjö sem fangað hefur hug og hjörtu íslenskra lesenda. Englatréð er sjálfstæð skáldsaga.
Herdís Magnea Hübner þýddi úr ensku.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Síðasta sumar lífsins er ljóðsaga sem segir frá tveimur elskendum sem eru staddir á ónefndri sólríkri eyju. Bókin hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2025.