Nína Þorkelsdóttir
Nína Þorkelsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1989 og hefur fjölbreyttan bakgrunn í mannfræði, lögfræði og tónlist. Hún hefur einnig lokið meistaragráðu í hagnýtri ritstjórn og útgáfu frá Háskóla Íslands og meistaranámi í félagsfræði laga frá Oxford-háskóla. Samhliða námi hefur hún starfað við tónlistarkennslu, ritstjórn og blaðamennsku.