Vonum það besta
Nýbökuð móðir með barn á brjósti fær furðulegan tölvupóst frá manni sínum: Lykilorðið að tölvunni hans og nánari upplýsingar í skjalinu „Ef ég dey“. En. Vonum það besta!
Stuttu síðar deyr hann.
Sagan segir frá ást sem fæðist, hversdagslífi og skelfilegu áfalli. Ung kona fær það á heilann að hún eigi sök á dauða manns síns, hún hafi farið of geyst, hún stendur frammi fyrir óbærilegri sorg og svo þeirri óhjákvæmilegu staðreynd að lífið heldur áfram.
Þetta er fyrsta skáldsaga Carolinu Setterwall, sem vakti mikla athygli þegar hún kom út í Svíþjóð árið 2018 og er væntanleg 28 löndum.
Halla Kjartansdóttir þýddi úr sænsku.
Carolina Setterwall
Sektin, sorgin og ástin samtvinnaðar á kjarkmikinn hátt.
Bókin er einstaklega falleg þroskasaga þar sem höfundur hlífir sér hvergi heldur gengst við sjálfri sér og brestum sínum, hún lýsir líka hjartaskerandi vel fyrstu stundum, dögum og vikum eftir andlát Aksels enda hefur Carolina sagt í viðtölum að ein ástæða þess að hún skrifaði bókina var að hún kannaðist ekki við sorgina sem hún sá í sjálfs- hjálparbókum, sorg hennar var flóknari, tættari og óhreinni og hún vildi skrifa bók fyrir þá sem upplifa svipað.
Þegar ég lauk við bókina langaði mig bara til að segja: Þakka þér!