Systa

Bernska okkar allra á sér samhljóm hvar sem við erum, við hvaða atlæti sem við búum, hverjar sem minningar okkar eru; við eigum ómetanlegan fjársjóð í minningum okkar.

Að hugleiða eigin bernsku, foreldra og systkina, er ferðalag sem hverjum manni verður eftirminnilegt um leið og það skýrir lífssýn hans.

Lítum til bernskunnar í hvert skipti sem við stígum mikilvæg spor; allt er bernskunnar vegna hvar og á hvaða tíma sem hún líður.

Hér er á ferðinni bernskubók Sigrúnar Sveinbjörnsdóttur, Systu.

 

Vigdís Grímsdóttir hefur skrifað skáldsögur, ljóðabækur, smásögur og ævisögur.  Hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 1989 fyrir Ég heiti Ísbjörg, ég er ljón, 1996 fyrir Z – ástarsaga og 2007 fyrir Söguna um Bíbí Ólafsdóttur. Verðlaunin hlaut hún árið 1994 fyrir Grandaveg 7.

Síðustu bækur hennar eru Elsku Drauma mín (2016) og Dísusaga (2013).

 

Vigdís Grímsdóttir

Systa – bernskunnar vegna er bók sem skilur mikið eftir sig. Meira en lesandann kann að gruna í fyrstu og í raun meira en nokkur önnur íslensk bók sem undirrituð hefur lesið í þessu jólabókaflóði.

Ragnhildur Þrastardóttir

Morgunblaðið

… fallegur boðskapur í einlægri og hlýrri bók sem allir ættu að lesa; ekki síst þeir sem vinna með börnum alla daga, foreldrar og kennarar. Þetta er bók sem nær smám saman sterkum tökum á lesandanum; bók um mennskuna, barnanna og bernskunnar vegna.

Soffía Auður Birgisdóttir

Stundin

Þetta er bók sem nær smám saman sterkum tökum á lesandanum; bók um mennskuna, barnanna og bernskunnar vegna.

Soffía Auður Birgisdóttir

Stundin

Pin It on Pinterest

Share This