Sporðdrekar

 

Eldsnemma föstudagsmorguninn 28. október: Fyrir utan rautt bárujárnshús í Hafnarfirði bíður
maður í felum. Hann er nýkominn til landsins, hann skelfur af kulda, hann er um það bil að
hefja eftirförina. Þetta er afmælisdagurinn hennar Stellu og hún hefur slæma tilfinningu fyrir
kvöldinu. Svo byrjar að snjóa.

Sporðdrekar er meistaralega fléttuð skáldsaga um leyndarmál og svik, ástir og vináttu.

Þetta er tíunda bók Dags Hjartarsonar en fyrir þá síðustu hlaut hann tilnefningu til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna.

Pin It on Pinterest

Share This