Myndskreytt handbók um skrautlegar skepnur
Vissir þú að HRAFNAR geta hermt eftir hljóðum eins og páfagaukar? Á unglingsárum mynda hrafnar klíkur! En para sig oftast þegar þeir eru orðnir fullorðnir.
Það er ekki nóg með að MOSKÍTÓFLUGUR bíti – þær spræna líka á mann. Það eru bara kvenflugurnar sem sjúga blóð, karlflugurnar sjúga safa úr blómum.
Bráðskemmtilegar staðreyndir um skrítnar skepnur – og frábærar teikningar eftir hina sænsku Maju Safström.
Bók þessa sænska höfundar kom fyrst út á ensku: Eftir að risa-forlagið Penguin Random House uppgötvaði hæfileika hennar á Instagram! Valgerður Bjarnadóttir þýðir á íslensku.
Maja Safström
Teikningarnar eru einfaldar og fallegar en samt fullar af hlýju – hvernig fer hún að þessu!? Og það er stórkostlegt hvernig hún fléttar stuttum og skemmtilegum staðreyndum inn! Já, einfaldlega uppáhaldsbók fjölskyldunnar. Fyrir unga sem aldna.
Ég var jafn hugfanginn og opimynnta fimm ára barnið sem ég var að lesa fyrir. Virkilega mögnuð myndabók með húmorískum teikningum og fyrsta flokks staðreyndum.
Mögnuð bók!