Deus

Deus

Bókin Deus eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur er skáldsaga sem kom út árið 2023 hjá Benedikt bókaútgáfu. Hún fjallar um tengsl trúarbragða, gervigreindar og mannlegrar tilveru í nálægri framtíð, þar sem tæknin hefur náð djúpstæðum áhrifum í samfélaginu.

Sagan er sögð frá fjórum sjónarhornum og fylgir eftir mismunandi persónum:

Sigfús, skáld sem missir tökin á lífinu þegar hann finnur Guð í strætó, sem leiðir til þess að veröld hans byrjar að hrynja.

Ísabella, unglingur sem glímir við stórar og flóknar tilfinningar, en á erfitt með að tjá þær.

Andri Már, blaðamaður sem þarf að fóta sig á nýjum og ókunnugum vettvangi eftir að hafa misst vinnuna.

Fjórða sjónarhornið kemur í formi vísindafrétta og tilkynninga sem veita lesandanum innsýn í þróun nýsköpunarfyrirtækisins DEUS Technologies, sem vinnur að því að þróa trúarbrögð með aðstoð gervigreindar.

Deus sameinar vísindaskáldskap og samfélagslega gagnrýni með áherslu á trú, tækni og sjálfsmynd. Bókin veltir upp spurningum um hvernig gervigreind getur haft áhrif á trúarbrögð og hvernig einstaklingar takast á við tilverukreppu í heimi þar sem mörk milli manns og tækni verða óljós.

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Allt sem rennur

Allt sem rennur

á hverju ári sendir hún

fyrrverandi eiginmanni sínum skilaboð

 

ég lifi 

á hverju ári svarar hann

ég veit 

Bergþóra Snæbjörnsdóttir hefur áður sent frá sér ljóðabækurnar Daloon dagar og Flórída sem og skáldsöguna Svínshöfuð. Þær tvær síðarnefndu hlutu tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Hamingja þessa heims – riddarasaga

Hamingja þessa heims – riddarasaga

Hvað mun veröldin vilja?

Miðaldra sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands er sendur í útlegð í Dölunum eftir að hafa verið sakaður um óviðurkvæmilega framkomu við samstarfskonur sínar. Þar finnur hann áður óþekkt handrit sem varpar nýju ljósi á löngu liðna sögu.

Árið 1479 situr gamall maður í fjósi og skrifar í kappi við tímann og dauðann um atburði sem hann hefur orðið vitni að á langri ævi sem ritari, hirðskáld og hermaður í þjónustu Ólafar ríku Loftsdóttur, valdamestu konu landsins, og ættmenna hennar.

Fimmtánda öldin er öldin sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Hér stíga helstu persónur hennar ljóslifandi fram; riddarar, skáld og sjóræningjar, hirðstjórar, biskupar og konungar, og margir atkvæðamestu kvenskörungar sem landið hefur alið.

Sagnfræðingurinn þarf að greiða úr heimildum um þessa gleymdu fortíð um leið og hann glímir við nútímann og spurningar hans um kynhlutverk, völd og slaufun; samfélagsmiðla, rafbílinn sinn og hvort hann eigi að fá sér Pizza Grandiosa í kvöldmatinn.

Þetta er skáldsaga um ástríður og upplausn, vægðarlausa valdabaráttu og vopnaskak, dauða og drepsóttir, en líka um það ólíkindalega ævintýri að vera manneskja.

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Guli kafbáturinn

Guli kafbáturinn

Miðaldra rithöfundur staddur í almenningsgarði í London á brýnt erindi við Paul McCartney sem situr þar undir tré. Fortíðin sækir á hann í líki gamals Trabants þar sem sitja m.a. faðir hans og Guð með vodkaflösku, mamma hans og heill kirkjugarður af dánu fólki. Skáldsaga um listina, dauðann og þó miklu frekar um lífið, ímyndunaraflið og Bítlana.

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Eldur í höfði

Eldur í höfði

Þetta eru ekki mínar hugsanir. Þær bara koma. Ég veit ekki hvaðan og ég get ekki stjórnað þeim á nokkurn hátt. Ein af annarri læðast þær inn í höfuðið á mér.

Hver hugsun er vagn sem tengist við vagn sem tengist við vagn. Höfuðið á mér er lestarstöð þar sem fleiri og fleiri lestir renna stjórnlaust inn. Einn daginn springur það. Höfuðið á mér.

Karl Ágúst Úlfsson hefur skrifað fjölda leikrita,söngleikja, útvarps- sjónvarps- og kvikmyndahandrit, ljóð og söngtexta, auk þess að vera mikilvirkur þýðandi. Hann hefur sent frá sér tvö smásagnasöfn. Eldur í höfði er hansfyrsta skáldsaga.

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.