No Results Found
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Miðaldra rithöfundur staddur í almenningsgarði í London á brýnt erindi við Paul McCartney sem situr þar undir tré. Fortíðin sækir á hann í líki gamals Trabants þar sem sitja m.a. faðir hans og Guð með vodkaflösku, mamma hans og heill kirkjugarður af dánu fólki. Skáldsaga um listina, dauðann og þó miklu frekar um lífið, ímyndunaraflið og Bítlana.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Þetta eru ekki mínar hugsanir. Þær bara koma. Ég veit ekki hvaðan og ég get ekki stjórnað þeim á nokkurn hátt. Ein af annarri læðast þær inn í höfuðið á mér.
Hver hugsun er vagn sem tengist við vagn sem tengist við vagn. Höfuðið á mér er lestarstöð þar sem fleiri og fleiri lestir renna stjórnlaust inn. Einn daginn springur það. Höfuðið á mér.
Karl Ágúst Úlfsson hefur skrifað fjölda leikrita,söngleikja, útvarps- sjónvarps- og kvikmyndahandrit, ljóð og söngtexta, auk þess að vera mikilvirkur þýðandi. Hann hefur sent frá sér tvö smásagnasöfn. Eldur í höfði er hansfyrsta skáldsaga.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
ferð í fötin fyrir þriðja vekjara
stoppar eftir fimmta kaffibolla
sjöunda bjór
sturtar þig
alltaf
þegar þú byrjar að forðast það
og færð þér göngutúr
býrð þér til reglur
reglur
til að fylla dagatöl
brosköllum
mánuðirnir
brekka
til að rúlla niður
Bókin Álfheimar eftir Brynjar Jóhannesson er ljóðabók sem kom út árið 2021 hjá Benedikt bókaútgáfu. Þetta er fyrsta ljóðabók höfundar í fullri lengd, en áður hafði hann gefið út tólf stuttar ljóðabækur.
Í Álfheimar lýsir Brynjar heiminum í einföldum setningum, án kaldhæðni og stæla. Sjónarhornið er kirfilega njörvað við hversdagsleika Laugardalsbúa, skrítið og tært en samtímis fjarrænt og súrrealískt.
Bókin hefur hlotið jákvæðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. Á Goodreads hefur hún fengið meðaleinkunnina 4.42 af 5 mögulegum, byggt á 33 einkunnum og 3 umsögnum.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Ég á erfitt með að einbeita mér að fyrirlestrinum því ég á eftir að svara skeytinu frá henni. Hugsa stöðugt um mögulegar útfærslur á smekklegu daðri samstarfskvenna á fertugs- og fimmtugsaldrinum. Salurinn er ekki fullur og þess vegna mæðir meira á okkur sem þó erum mætt til að veita listafólkinu athygli. Þetta er erlent gagnkynhneigt par að halda powerpoint sýningu á verkum sínum. Hún leiðir talið, talar heldur áherslulaust um þriðja og jafnframt nýjasta verk þeirra: gjörning sem stóð yfir í þrjá sólarhringa og snérist um það að leyfa sér að vera í vondu skapi. Ég held ekki nógu vel athyglinni en mér skilst að fólk hafi komið í kaffi heim til þeirra og fengið að upplifa hana í vondu skapi.
Óskilamunir – sögur um ástir sem finnast og tapast, hvernig sársauki mótar okkur, um allt það sem brotnar en ekki síst brotin sem enginn vitjar. Hvernig við leitum með veiku ljósi að leið í gegnum þetta ævarandi grímuball sem lífið er.
Óskilamunir er saga sögð á áhrifaríkan hátt, hún hrífur lesandann með sér og höfundi tekst á einstakan hátt að halda þræði í gegnum óvenjulega uppbygginguna og ólínulega framvinduna þannig að það er ómögulegt að leggja bókina frá sér. – Kristín Lilja, Bókmenntavefurinn
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
„Í okkar sambandi var ég bæði eign og eigandi: Ég var Hildur hans Sverris og þú varst Sverrir hennar Hildar. Ég eignaði mér margt af þínu. Þín líðan var mín líðan, þín skömm mín, þitt líf mitt líf.“
Hildur er laus úr erfiðu hjónabandi og styrkur hennar eykst dag frá degi. Hún lítur til baka og hugsar um mynstrin sem við lærum svo rækilega að á endanum vefjast þau um háls okkar eins og níðþungir hlekkir.
Af hverju leyfði hún eiginmanninum, sem í byrjun minnti hana á grískt goð, að: hunsa hana í viku af því hún var glöð í partýi þegar honum fannst ekki gaman, segja henni að enginn annar myndi vilja hana og segja henni að hún væri geðveik? Af hverju beið hún svona lengi með að losa sig?
„Mér finnst ég vera að kafna og samtímis að detta í frjálsu falli niður í dimma botnlausa gjá. Þetta er örvænting, ekki ósvipuð þeirri sem ég fann fyrir á kvöldin sem barn, þegar hugurinn náði ekki utan um óendanleika geimsins eða um það hvernig það væri að týnast á botni úthafsins.“
Þetta er saga um ofbeldi og eftirsjá en einnig um þrautseigju og sátt. Konan hans Sverris er fyrsta skáldsaga höfundar.