No Results Found
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Halla Þórðardóttir er menntaður dansari og starfaði með Íslenska dansflokknum um árabil. Sólin er hringur er hennar fyrsta ljóðabók.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Sara Björk Gunnarsdóttir og Magnús Örn Helgason komu saman að útgáfu bókarinnar Óstöðvandi – Sara Björk, sem kom út árið 2019 hjá Benedikt bókaútgáfu. Bókin er einlæg og fallega myndskreytt ævisaga Söru Bjarkar, fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu og íþróttamanns ársins 2018 og 2020.
Í Óstöðvandi segir Sara frá fótboltaferli sínum, allt frá fyrstu skrefum á Pæjumótinu í Hafnarfirði til þess að spila í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Hún deilir sigrum og vonbrigðum, átökum utan vallar, stuðningi fjölskyldu sinnar og glímunni við kvíða. Bókin hefur hlotið lof fyrir einlæga frásögn og vandaða framsetningu.
Magnús Örn Helgason skrásetti söguna og þetta var frumraun hans sem rithöfundur. Hann hefur einnig gefið út bókina Hannes – handritið mitt, sem fjallar um Hannes Þór Halldórsson, markvörð íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Adolf Smári Unnarsson (f. 1993) er íslenskur leikstjóri, leikskáld og rithöfundur með fjölbreyttan feril í sviðslistum og bókmenntum. Hann útskrifaðist frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands árið 2019 og lauk meistaragráðu í leikstjórn frá DAMU, leiklistardeild listaakademíunnar í Prag, árið 2023.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Karl Ágúst Úlfsson er landsþekktur fyrir störf sín í þágu listar og menningar. Í gegnum tíðina hefur hann þýtt fjölda bóka, skrifað leikrit, samið sjónvarpsefni og kennslubækur svo fátt eitt sé nefnt. Árið 2014 gaf Karl út bókina Aþena, Ohio.
Hjá Benedikt hafa komið út bókin Átta sár á samviskunni, sem inniheldur bráðskemmtilegar sögur um fólk úr ýmsum áttum og vorið 2021 skáldsagan Eldur í höfði.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Berglind Guðmundsdóttir er manneskjan á bak við eina vinsælustu matarblogg-síðu landsins, Gulur, rauður, grænn & salt. Hún fær yfir 250 þúsund heimsóknir á mánuði og fylgjendur á Facebook eru 21.000.
„Matarbloggið Gulur, rauður, grænn & salt varð til í kjölfarið á dásamlegri ferð til Barcelona haustið 2012. Ég elska mat í allskonar litum, því feiri sem litirnir eru því betra. Þannig er hægt að ná fram sumarstemningu hvernig sem viðrar – að minnsta kosti í hjarta. Ég vil því elda litríkan mat og er hrifin af mat hvaðanæva að úr heiminum. Leiðarljósið hefur þó alltaf verið að hafa uppskriftirnar einfaldar og á allra færi. Ég reyni að forðast öll flækjustig; hráefnin eru aldrei mjög mörg í hverri uppskrift og það er auðvelt að verða sér úti um þau.“
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.