Deus

Deus

Bókin Deus eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur er skáldsaga sem kom út árið 2023 hjá Benedikt bókaútgáfu. Hún fjallar um tengsl trúarbragða, gervigreindar og mannlegrar tilveru í nálægri framtíð, þar sem tæknin hefur náð djúpstæðum áhrifum í samfélaginu.

Sagan er sögð frá fjórum sjónarhornum og fylgir eftir mismunandi persónum:

  • Sigfús, skáld sem missir tökin á lífinu þegar hann finnur Guð í strætó, sem leiðir til þess að veröld hans byrjar að hrynja.

  • Ísabella, unglingur sem glímir við stórar og flóknar tilfinningar, en á erfitt með að tjá þær.

  • Andri Már, blaðamaður sem þarf að fóta sig á nýjum og ókunnugum vettvangi eftir að hafa misst vinnuna.

  • Fjórða sjónarhornið kemur í formi vísindafrétta og tilkynninga sem veita lesandanum innsýn í þróun nýsköpunarfyrirtækisins DEUS Technologies, sem vinnur að því að þróa trúarbrögð með aðstoð gervigreindar.

Deus sameinar vísindaskáldskap og samfélagslega gagnrýni með áherslu á trú, tækni og sjálfsmynd. Bókin veltir upp spurningum um hvernig gervigreind getur haft áhrif á trúarbrögð og hvernig einstaklingar takast á við tilverukreppu í heimi þar sem mörk milli manns og tækni verða óljós.

Hamingja þessa heims – riddarasaga

Hamingja þessa heims – riddarasaga

Hvað mun veröldin vilja?

Miðaldra sagnfræðiprófessor við Háskóla Íslands er sendur í útlegð í Dölunum eftir að hafa verið sakaður um óviðurkvæmilega framkomu við samstarfskonur sínar. Þar finnur hann áður óþekkt handrit sem varpar nýju ljósi á löngu liðna sögu.

Árið 1479 situr gamall maður í fjósi og skrifar í kappi við tímann og dauðann um atburði sem hann hefur orðið vitni að á langri ævi sem ritari, hirðskáld og hermaður í þjónustu Ólafar ríku Loftsdóttur, valdamestu konu landsins, og ættmenna hennar.

Fimmtánda öldin er öldin sem týndist í Íslandssögunni, þegar þjóðin lenti skyndilega í hringiðu evrópskra stjórnmála og viðskiptahagsmuna. Hér stíga helstu persónur hennar ljóslifandi fram; riddarar, skáld og sjóræningjar, hirðstjórar, biskupar og konungar, og margir atkvæðamestu kvenskörungar sem landið hefur alið.

Sagnfræðingurinn þarf að greiða úr heimildum um þessa gleymdu fortíð um leið og hann glímir við nútímann og spurningar hans um kynhlutverk, völd og slaufun; samfélagsmiðla, rafbílinn sinn og hvort hann eigi að fá sér Pizza Grandiosa í kvöldmatinn.

Þetta er skáldsaga um ástríður og upplausn, vægðarlausa valdabaráttu og vopnaskak, dauða og drepsóttir, en líka um það ólíkindalega ævintýri að vera manneskja.

Eldarnir

Eldarnir

„Skáldin mega hjala um ástina, en ég þekki hana, hef séð hana að verki. Hún er ekkert annað en náttúruhamfarir.“ 

Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eldfjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og fullkomið líf hennar lætur ekki lengur að stjórn.

Eldarnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Fyrri bækur hennar, Eyland og Hið heilaga orð, hafa vakið verðskuldaða athygli og verið þýddar á fjölda tungumála.

Hið heilaga orð

Hið heilaga orð

Þú ert veiðimaður. Þú finnur hana.

Ung kona hverfur af heimili sínu, frá nýfæddu barni. Lögreglan er ráðalaus, en fjölskyldan sendir bróður hennar að leita hennar.

Til að leysa ráðgátuna þarf hann að rekja slóð hennar í framandi heimi og takast á við óvenjulega fortíð fjölskyldunnar. Þetta er saga um ástríður, lestur, flótta og ferðalög, og undursamleg völundarhús mannshugans .

Bókin Hið heilaga orð eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur kom út árið 2018 hjá Benedikt bókaútgáfu. Þetta er spennandi og hugmyndadrifin skáldsaga sem sameinar fjölskyldudrama, sálfræðilega dýpt og samfélagslega gagnrýni.

Sig­ríði tekst með ein­dæm­um vel að teyma les­end­ur áfram í gegn um söguþráðinn með óvænt­um beygj­um þegar síst er von á (…)  feiki­lega vel skrifuð og þess virði að sökkva sér ofan í.

Morgunblaðið 30. nóv, Facebook

Intellektúel, tilfinningaþrungin. Flóknar og heillandi manngerðir. Skrýtið, en töfrandi líf. Rússíbanareið um sögu mannsandans í heimi nýrrar tækni. Listilega spunninn þráður. Spenna og samúð. Kynþokki. Næmni. Alþjóðleg sýn. Íslenskur veruleiki. Firnavel skrifað. Töff lýsingar. Fögur íslenska.

Facebook

Hugmyndadrifin spennusaga sem líkist vinsælum höfundarverkum Dans Brown. Bókin er karakterdrifin, þetta eru ofsalega vel teiknaðir karakterar. Afskaplega skemmtileg aflestrar.

Kiljan, RÚV

Intellektúel, tilfinningaþrungin. Flóknar og heillandi manngerðir. Skrýtið, en töfrandi líf. Rússíbanareið um sögu mannsandans í heimi nýrrar tækni. Listilega spunninn þráður. Spenna og samúð. Kynþokki. Næmni. Alþjóðleg sýn. Íslenskur veruleiki. Firnavel skrifað. Töff lýsingar. Fögur íslenska.

Facebook

Grípandi saga um flókin álitaefni sem fjallað er um af næmi, hugmyndaauðgi og dýpt.

Fréttablaðið, 30. nóv.

Hér er falleg og spennandi frásögn sem fer víða, ansi næm lýsing á systkinasambandi og þróun þess, og svo kann þessi kona svo vel að skrifa karla, engar silkislæður þar. Skemmtilegar eru lýsingarnar á Reykjavík í níunni, og fjölskyldumyndin sem hér birtist er fersk. Rammíslenskur lestrarhnignunartryllir með dassi af Da Vinci Code. Fyrir mína parta voru kaflarnir í útlöndum einna bestir og einhver tilfinning segir manni að Sigga sé á leiðinni til einhvers enn stærra.

Facebook

Eyland

Eyland

Manstu hvar þú varst þegar það gerðist?

Hjalti og María slíta ástarsambandi sínu og skyndilega er allt breytt. Stundum gerast svo stórir atburðir að þeir sameina allt mannkyn, eina örskotsstund, eins og slinkur hafi komið á þyngdaraflið og þjappað öllum heiminum saman.

Einbúi í eyðifirði óttast ekkert meira en að björgunarsveitirnar finni hann. Á meðan hann bíður skrifar hann annál þess sem á undan er gengið.

Eyland er hrollvekjandi ástar- og spennusaga, þar sem Íslandssagan tekur óvænta stefnu.
Bókin hefur komið út á fjölda tungumála.

Tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2016

Útgáfuár: 2016. Þetta er fjórða útgáfa bókarinnar, sem hefur selst upp hvað eftir annað, og kemur út sumarið 2021.

Ef þið lesið tvær bækur yfir hátíðarnar, látið þessa vera aðra þeirra. Það er ekkert hægt að segja annað. Bara jafna sig, standa upp, klappa og þakka fyrir.

herdubreid.is

 

Frumleg og grípandi saga sem vekur mann til umhugsunar um nútímann, lífið og hið stóra samhengi allra hluta.

Benedikt – útgáfan 2016

Á heildina litið er hér um að ræða stórgóða bók sem heldur lesandanum fram á síðustu blaðsíðu, textinn sjálfur er fallegur og rennur áreynslulaust áfram, frásagnarstíllinn er skemmtilegur og söguþráðurinn sjálfur er heillandi.

Hugvitsamlega byggð og ágeng bók.

Hugrás.is

Maður segir bara: Vá!

Kolbrún Bergþórsdóttir
Kiljan

Sláandi vel skrifuð.

Kiljan

Frábærlega vel gert.

Kiljan