Sögu ríkari

Sögu ríkari

 

Vinkonurnar Lovísa og Patricia fara í haustlitaferð til Kyoto, fyrrum höfuðborgar Japan.

Þær eru með sögur og ást á heilanum. Lovísa lifir sig inn í frásagnir Patriciu og reynslusögurnar verða því á við lestur góðrar bókar. Stundum er sagt að sjón sé sögu ríkari, en er það alltaf þannig?

Sögu ríkari er stutt og aðgengileg bók um vináttu og mörk veruleika og skáldskapar.

Karítas Hrundar Pálsdóttir hefur áður gefið út bækurnar Árstíðir, Dagatal og Vikuspá sem innihalda sögur á einföldu máli.

Vikuspá

Vikuspá

„Að lesa Vikuspá er frábær leið til að læra íslensku“

– Úr formála Safa Jemai, frumkvöðuls

 

 Vikuspá geymir áttatíu og sex sögur á einföldu máli. Í stuttum og aðgengilegum frásögnum eru ólíkar atvinnugreinar kynntar. Hér er leikið með þá íslensku þjóðtrú að það geti haft áhrif á hvað barn taki sér fyrir hendur í framtíðinni á hvaða vikudegi það fæðist Sögupersónur takast á við þrautir og sigra í leit að hinum gullna meðalveg, milli frama og lukku. Sögurnar varpa ljósi á fegurð mannflórunnar og mikilvægi þess að þroskast og þróast í takt við tímann.

Vikuspá er sjálfstætt framhald af Árstíðum og Dagatali sem hafa notið mikilla vinsælda og verið kenndar víða á Íslandi sem og erlendis. Textarnir eru fjölbreyttir hvað varðar efnistök, form og stíl og flokkaðir eftir getustigi í samráði við sérfræðinga. Þar að auki fylgir viðauki með margskonar fróðleik um land og þjóð. Bókin nýtist jafnt við kennslu sem og til yndislestrar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bækur eftir sama höfund