No Results Found
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Er það ábyrgð eða hugleysi að sætta sig við örlög sín? Hér tvinnast saman yfir staði og tíma, frá Hólmavík suður eftir Evrópu, kynslóð fram af kynslóð, líf sem kannski eru jafn tíðindalítil og girðingarstaurar en halda þó öllu uppi.
Kornabarn sem rétt er yfir eldhúsborð, löngu dáið þýskt skáld, trillusjómaður sem er sérfræðingur í Kierkegaard, döpur rokkstjarna, stúdína úr MR, dánir hvolpar og hver er þessi prestlærði rútubílstjóri?
Sum bros geta breytt heimum og sum líf kvikna eingöngu vegna þess að heimar gengu úr skorðum. Þetta er saga mennsku og breyskleika og hinnar óseðjandi gleymsku.
Er það ábyrgð eða hugleysi að sætta sig við örlög sín?
Hér tvinnast saman yfir staði og tíma, frá Hólmavík suður eftir Evrópu, kynslóð fram af kynslóð, líf sem kannski eru jafn tíðindalítil og girðingarstaurar en halda þó öllu uppi. Kornabarn sem rétt er yfir eldhúsborð, löngu dáið þýskt skáld, trillusjómaður sem er sérfræðingur í Kierkegaard, döpur rokkstjarna, stúdína úr MR, dánir hvolpar og hver er þessi prestlærði rútubílstjóri? Sum bros geta breytt heimum og sum líf kvikna eingöngu vegna þess að heimar gengu úr skorðum. Þetta er saga mennsku og breyskleika og hinnar óseðjandi gleymsku.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Sögusviðið er sjávarþorp um þarsíðustu aldamót. Það er vetur og strákurinn kemur úr sjóferð. Besti vinur hans hefur frosið í hel á hafi úti. Nú er hann einn í heiminum með alla sína drauma. Við fylgjumst með honum á torfærri leið til fullorðinsáranna og ástarinnar, sem er bæði ljúf og forboðin.
Fjöllin steypast þverhnípt niður í fjörðinn og hafið gefur og tekur.
Hér er þríleikurinn Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins í fyrsta skipti gefnn út á einni bók.
Þríleikurinn hefur komið út á fjölda tungumála.
Jón Kalman Stefánsson fékk bókmennta-verðlaun PO Enquists árið 2011 með rökstuðningnum: Verk hans er bæði stórbrotið og töfrandi. Frásagnir sem breyta lífinu í sannar bókmenntir og gefa bókmenntunum nýtt líf.
Hann hefur verið margtilnefndur til Íslensku bókmennta- verðlaunanna, nú síðast fyrir Sögu Ástu (2017) og hlaut þau fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin (2005).
Leikgerð Bjarna Jónssonar á þríleiknum var frumsýnd í Borgarleikhúsinu 11. janúar 2018 og hlaut frábærar viðtökur.
Kápuhönnun: Hjörvar Harðarson
ISBN: 978-9935-488-21-3
832 bls.
Jón Kalman Stefánsson fékk bókmennta-verðlaun PO Enquists árið 2011 með rökstuðningnum: Verk hans er bæði stórbrotið og töfrandi. Frásagnir sem breyta lífinu í sannar bókmenntir og gefa bókmenntunum nýtt líf.
Hann hefur verið margtilnefndur til Íslensku bókmennta- verðlaunanna, nú síðast fyrir Sögu Ástu (2017) og hlaut þau fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin (2005)
Leikgerð Bjarna Jónssonar á þríleiknum var frumsýnd í Borgarleikhúsinu 11. janúar 2018 og hlaut frábærar viðtökur.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
Hvert fer maður ef það er engin leið út úr heiminum?
Öll fæðumst við nafnlaus en erum mjög fljótlega nefnd svo það verði ögn erfiðara fyrir dauðann að sækja okkur. Foreldrar Ástu völdu nafnið meðan hún var enn í móðurkviði.
Nú liggur Sigvaldi faðir hennar á steyptri stétt – af hverju liggur hann þar? – og saga fjölskyldunnar rennur um huga hans.
Þetta er saga Ástu, saga um ást í ólíkum myndum, íslenska sveit, skáldskap og menntunarþrá.
Jón Kalman var tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir Sögu Ástu.
Kápuhönnun: Jón Ásgeir
444 bls.
Útgáfuár: 2017
Skáld á hátindi sinnar hæfni. Engin rannsóknarskýrsla til grundvallar. Eða dæmigert dufl við ,,stóru málin“ svokölluðu. Allt annað. Stórbrotinn efniviður, nýr frásagnarháttur. Skáldskapur. Farið þangað. Takið á móti. Lesið.
Bókin er meistaralega vel skrifuð, textinn rennur létt og ljóðrænt áfram. Hinn einkennandi stíll Kalmans er hvarvetna til staðar, landslagið lifnar við og speglar atburðarás og tilfinningar sögupersóna…
Á heildina litið er hér um að ræða stórgóða bók sem heldur lesandanum fram á síðustu blaðsíðu, textinn sjálfur er fallegur og rennur áreynslulaust áfram, frásagnarstíllinn er skemmtilegur og söguþráðurinn sjálfur er heillandi.
Andri M. Kristjánsson Víðsjá
Fullt hús
Maríanna Clara Lúthersdóttir Morgunblaðið
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
„Tilvera mín er sprottin af einni setningu; sjö orðum sögðum í eldhúsi í Skaftahlíð snemma morguns í janúarmánuði árið 1959. Ungur maður hafði komið upp úr kjallaraíbúð og stefndi niður að horni Skaftahlíðar og Lönguhlíðar.
Hann gekk framhjá litlu fjölbýlishúsi, amma mín horfði út um eldhúsglugga á annarri hæðinni og muldraði setninguna sem allt hvílir á: Stakkels manden, hvorfor er honum svo kalt?“ Snarkið í stjörnunum er ættarsaga sem hverfist um hugarheim móðurlauss sjö ára drengs í Reykjavík í kringum 1970.
Snarkið í stjörnunum er fimmta skáldsaga höfundar og kom fyrst út árið 2003. Jón Kalman hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin og tilnefningu til sömu verðlauna fyrir Sögu Ástu árið 2017.
Skáldasaga hans Fjarvera þín er myrkur (2020) hlaut virt frönsk verðlaun Le Point og France Inter sem besta þýdda skáldsagan vorið 2022, en bækur hans eru þýddar á fjölmörg tungumál.
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.