Eldri konur

Eldri konur

Fyrsta skáldsaga Evu Rúnar, þar sem ung kona rekur líf sitt frá barnæsku til fullorðinsára í gegnum frásagnir af eldri konum sem hafa heltekið hana.

Sagan er samsett úr brotakenndum frásögnum sem endurspegla flókinn uppvöxt aðalpersónunnar, þar sem hún glímir við erfiðar heimilisaðstæður, óstöðugleika og leit að sjálfsmynd. Þráhyggja hennar fyrir eldri konum birtist sem bæði ást og fíkn, sem hefur djúp áhrif á líf hennar. Eva Rún nýtir ljóðrænan og leikrænan stíl til að draga upp sterka og margræða mynd af heiminum sem hreyfir við lesandanum.

Bókin hefur hlotið lof gagnrýnenda og lesenda. Þorgeir Tryggvason lýsti henni sem „alveg feikilega magnaðri“ í umfjöllun á RÚV. Einnig hefur hún verið tilnefnd til Fjöruverðlaunanna, sem veitt eru fyrir framúrskarandi bókmenntir eftir konur.

 

 

Bækur eftir þennan höfund

Djöflarnir taka á sig náðir
Djöflarnir taka á sig náðir

Óskilamunir

Óskilamunir

Ég á erfitt með að einbeita mér að fyrirlestrinum því ég á eftir að svara skeytinu frá henni. Hugsa stöðugt um mögulegar útfærslur á smekklegu daðri samstarfskvenna á fertugs- og fimmtugsaldrinum. Salurinn er ekki fullur og þess vegna mæðir meira á okkur sem þó erum mætt til að veita listafólkinu athygli. Þetta er erlent gagnkynhneigt par að halda powerpoint sýningu á verkum sínum. Hún leiðir talið, talar heldur áherslulaust um þriðja og jafnframt nýjasta verk þeirra: gjörning sem stóð yfir í þrjá sólarhringa og snérist um það að leyfa sér að vera í vondu skapi. Ég held ekki nógu vel athyglinni en mér skilst að fólk hafi komið í kaffi heim til þeirra og fengið að upplifa hana í vondu skapi. 

Óskilamunir – sögur um ástir sem finnast og tapast, hvernig sársauki mótar okkur, um allt það sem brotnar en ekki síst brotin sem enginn vitjar. Hvernig við leitum með veiku ljósi að leið í gegnum þetta ævarandi grímuball sem lífið er. 

Óskilamunir er saga sögð á áhrifaríkan hátt, hún hrífur lesandann með sér og höfundi tekst á einstakan hátt að halda þræði í gegnum óvenjulega uppbygginguna og ólínulega framvinduna þannig að það er ómögulegt að leggja bókina frá sér. – Kristín Lilja, Bókmenntavefurinn

Fræ sem frjóvga myrkrið

Fræ sem frjóvga myrkrið

Í miðju herberginu, sófinn – hann minnir á leikfang í Barbie-húsi frá níunda áratugnum. Skræpóttur og doppóttur í senn, hrópandi allan viðbjóðinn sem hefur átt sér stað í herberginu. Fyrir ofan, í plastramma; eftirprentun af Renoir, siðaðar dömur sitja og drekka vín með betri borgurum í huggulegri bátsferð.

Eva Rún Snorradóttir er sjálfstætt starfandi sviðslistakona og ljóðskáld. Hún hefur áður sent frá sér tvær ljóðabækur: Heimsendir fylgir þér alla ævi og Tappi á himninum.

Fræ sem frjógva myrkrið fjallar meðal annars um nærfatakaup í sólarlandaferðum og far til að sýna þeim heima.

Kápuhönnun: Ólafur Unnar Kristjánsson
ISBN: 978-9935-488-34-3
80 bls.