Maríuklefinn
Maríuklefinn
„Allt rann saman: sagan, hugleiðingar, persónur og stíllinn, þannig að lesandanum fannst hann vera að upplifa eitthvað alveg nýtt. Það var þetta sem Eiríkur reyndi í sínum verkum. Hann var ekki að reyna að segja sögu; heldur að ölva heiminn með skáldskap.“
– Úr eftirmála Jóns Kalmans Stefánssonar
Bréfritari er staddur í Lissabon og vildi að María væri þar með sér, að horfa yfir tígulsteinsþökin og á skipin sem sigla um ána Tagus. Hann sér henni bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er svo heit, og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir. Í löngu bréfi til Maríu skrifar hann um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum.
Eiríkur Guðmundsson lést í ágúst árið 2022, 52 ára gamall. Meðal þess sem hann skildi eftir sig voru nokkur handrit. Þar á meðal var eitt fullunnið verk, bréfaskáldsagan Maríuklefinn, sem kemur fyrst út núna, fjórum árum eftir andlát höfundar.

