Óhugsandi líf

Óhugsandi líf

Það sem við teljum töfra
er bara það sem við skiljum ekki enn

Ekkjan Grace Winters erfir óvænt hús á Ibiza eftir konu sem hún þekkti lauslega fyrir löngu síðan. Forvitnin verður skynseminni yfirsterkari og hún leggur land undir fót til að komast að því hver örlög kunningjakonu hennar urðu. Á eyjunni þar sem sólin gyllir strendur og hlýr andvari strýkur grýttar hæðir bíða hennar margar spurningar og furðuleg svör. Til að skilja sannleikann þarf hún að horfast í augu við fortíð sína og viðurkenna töfrana.

Saga um upphaf, von og töfrana sem leynast í því að taka áhættuna á nýju lífi. 

Matt Haig er höfundur alþjóðlegu metsölubókarinnar Miðnæturbókasafnið sem kom út á íslensku árið 2022. Óhugsandi líf hefur þegar komið út á yfir 20 tungumálum og er talin hafa sérlega góð áhrif á seratónínframleiðslu heilans.

Arnar Matthíasson þýddi úr ensku.

„Ævintýraferð full af spennu og óvæntri upplifun.“

The New York Times

„Hrá en hlý lofgjörð um það besta við að vera manneskja.“

Benedict Cumberbatch

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Dauðinn og stúlkan

Dauðinn og stúlkan

Fyrir tuttugu og fimm árum átti hin glæsilega nítján ára gamla Vinca Rockwell í leynilegu ástarsambandi við kennara sinn. Í hennar augum var ástin „allt eða ekkert.“

Þau áttu stefnumót eina vetrarnótt …

Manon, Thomas og Maxime hafa ekki talað saman síðan þau útskrifuðust, fyrir tuttugu og fimm árum, en munu nú hittast á bekkjarmóti.

Mun sannleikurinn um það sem raunverulega gerðist þessa örlagaríku vetrarnótt koma í ljós?

Guillaume Musso er langsamlega vinsælasti höfundur Frakklands þessi árin og hafa skáldsögur hans verið þýddar á 40 tungumál og selst í yfir 33 milljónum eintaka um allan heim.

Hann fæddist í Antibes í Suður-Frakklandi og býr í París. Þessi bók gerist í fæðingarbæ hans og er sannkallaður vegvísir um Antibes og sveitirnar umhverfis.

Kristín Jónsdóttir þýddi úr frönsku.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

„Framúrskarandi.“ – Sunday Times

„Hrikalega góð bók. Ekki láta fram hjá sér fara.“ – Daily Mail

„Einn af fremstu spennusagnahöfundum samtímans.“

 Daily Express

 

„Stílhrein og fáguð, skemmtilega gamaldags … Meira svona, takk.“

– The Times

„Sérlega ánægjuleg og sögusviðið frábært, djarft handbragð höfundar heillar.“

– Irish Times

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Herbergi í öðrum heimi & Sápufuglinn

Herbergi í öðrum heimi & Sápufuglinn

„Tími er efni sem verður til á svo miklu dýpi innra með manneskju að það er ekki hægt að skilja hann til fullnustu.“

Smásagnasöfnin Herbergi í öðrum heimi og Sápufuglinn slógu eftirminnilega í gegn þegar þau komu fyrst út, en sú síðarnefnda fékk sérstaka viðurkenningu Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins 2024. Hér eru allar sögurnar samankomnar í eina bók.

Sögur Maríu Elísabetar koma róti á huga lesanda og einkennast af djúpu innsæi, húmor og hugmynda- auðgi. Hún skrifar af öryggi um valdadýnamík í samböndum, flókna kynverund og dularfulla þrá fólks eftir því sem það getur ekki fengið.

 

★★★★★ – Morgunblaðið

„Í Sápufuglinum fjallar María Elísabet um álitamál samtímans og setur í samhengi við mannlegar og flóknar tilfinningar á hátt sem ber hæfileikum þessa upprennandi rithöfundar glöggt vitni.“

Andrej Kúrkov, formaður dómnefndar Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins

 

„Ein besta frumraun sem maður hefur séð.“

Hallgrímur Helgason

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Kvöldið sem hann hvarf

Kvöldið sem hann hvarf

Móðir og faðir Noru Noone deyja bæði af slysförum með stuttu millibili. Sorgin hefur mikil áhrif á líf hennar ekki síst þegar hálfbróðir hennar heldur því fram að dauði Liam föður þeirra, ríks hótelkeðjueiganda, hafi ekki verið slys.

Nora samþykkir með semingi að kanna málið og kemst fljótt að því að það er ekki allt með felldu. Faðir hennar virðist hafa búið yfir leyndarmáli sem hann sagði ekki börnum sínum frá en var rauði þráðurinn í lífi hans.

Leið systkinanna liggur þvert yfir Bandaríkin frá New York til Kaliforníu í leit að vísbendingum. Á meðan þarf Nora að reyna að gera upp við sig hvort hún vilji bjarga sambandinu við unnusta sinn.

Var faðir hennar myrtur? Hver var þá morðinginn? Hvaða leyndarmáli bjó faðir hennar yfir?

Metsölubókin Það síðasta sem hann sagði mér eftir sama höfund kom út á íslensku 2022.

Valin af bókaklúbbi Reese Witherspoon.

Sjónvarpsþættir gerðir eftir bókinni með Jennifer Garner í aðalhlutverki hafa slegið í gegn.

Arnar Matthíasson þýddi úr ensku.

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.

Mara kemur í heimsókn

Mara kemur í heimsókn

Mara kemur í heimsókn fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand.

Natasha S. er íslenskur rithöfundur af rússneskum uppruna sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir ljóð sín og greinar. Hún sló eftirminnilega í gegn með útgáfu fyrstu ljóðabókar sinnar Máltaka á stríðstímum, en fyrir hana hlaut hún Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar. Natasha hefur einnig verið öflugur talsmaður skálda af erlendum uppruna á Íslandi og ritstýrði ljóðasafninu Pólífónía af erlendum uppruna og ritgerðasafninu Skáldreka.

Bækur eftir sama höfund

No Results Found

The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.