Ég hef séð svona áður
Ferðalangur leitar að húfu með nafni bæjarins sem hann er staddur í. Sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum fer á ráðstefnu sem hún á ekki erindi á. Aðfluttur Reykvíkingur losar sig við byssu. Millistykki í skjávarpa bilar á mikilvægu augnabliki.
Ég hef séð svona áður hefur að geyma tólf nýjar smásögur eftir Friðgeir Einarsson, höfund bókanna Takk fyrir að láta mig vita og Formanns húsfélagsins sem báðar hlutu lofsamlegar viðtökur gagnrýnenda. Friðgeir er einn af forsprökkum hins óviðjafnanlega leikhóps Kriðpleirs.
Kápuhönnun: Ólafur Unnar Kristjánsson
Teikning á kápu: Sigrún Hlín Sigurðardóttir
ISBN: 978-9935-488-02-2
168 bls.