Morðin á heimavistinni

Charlie Cavendish, nemi í fínum litlum heimavistarskóla í Norfolk, deyr skyndilega. Skólayfirvöld eru fljót að afgreiða andlát hans sem slys en þrýstingur föður hans verður til
þess að Jazmine „Jazz“ Hunter rannsóknarfulltrúi er send ásamt aðstoðarmanni sínum til að rannsaka málið. Brátt kemur í ljós að Charlie var myrtur og að hann lagði samnemendur sína í einelti. Var um hefnd að ræða? Jazz verður að svara þeirri spurningu og komast að því hvort
sjálfsmorð prófessors við skólann tengist morðinu. Á sama tíma reynir hún að standast persónutöfra fyrrverandi eiginmanns síns sem vill að þau taki saman á ný. En þá fer morðunum að fjölga …

Lucinda Riley er höfundur bókaflokksins um systurnar sjö sem notið hefur gífurlegra vinsælda undanfarin ár. Morðin á heimavistinni er sjálfstæð skáldsaga.

Lucinda Riley

Riley er einn besti höfundur sinnar tegundar … sagnfræðin er með ágætum, ástarsagan hjartnæm og dulúðin töfrandi.

Historical Novel Society

Pin It on Pinterest

Share This