Hetjusögur
![HetjusogurFront](https://i0.wp.com/benedikt.is/wp-content/uploads/2020/09/HetjusogurFront.jpg?resize=1080%2C1444&ssl=1)
aldrei urðu vötnin henni farartálmi
aldrei brast hana kjark
aldrei dró hún úr því að lagt væri á tæpasta vaðið
Ljóðin í bókinni eru ort upp úr ritinu Íslenskar ljósmæður I–III sem séra Sveinn Víkingur bjó til prentunar og kom út hjá Kvöldvökuútgáfunni á Akureyri 1962–1964. Þar eru prentaðir æviþættir og endurminningar 100 ljósmæðra.
Kristín Svava Tómasdóttir er fædd í Reykjavík 1985. Hún hefur sent frá sér þrjár ljóðabækur, síðast Stormviðvörun árið 2015, og sagnfræðiritið Stund klámsins. Klám á Íslandi á tímum kynlífsbyltingarinnar.