Guli kafbáturinn

Rithöfundur á miðjum aldri hefur komið sér fyrir í almenningsgarði í London. Hann á brýnt erindi við Paul McCartney, sem situr þar undir tré, en fortíðin truflar hann í sífellu og sækir að honum í líki gamals Trabants með rauðu þaki. Í bílnum sitja faðir hans, Guð með vodkaflöskuna, og Johnny Cash með gítarinn í aftursætinu, og fleiri bætast í hópinn; Sesselja gamla og Guðmundur á fjórðu hæðinni, Jesús og mamma hans, heill kirkjugarður af dánu fólki, Benjamín ökukennari og Örn Örlygsson, sem grefur upp 5000 ára gömul ljóð á súmerskum leirtöflum. Þetta er skáldsaga um listina, dauðann og þó miklu frekar um lífið, undursamlegan lækningamátt ímyndunaraflsins og Bítlana. 

Guli kafbáturinn er fjórtánda skáldsaga Jóns Kalman sem síðast sendi frá sér Fjarvera þín er myrkur (2020) sem hlaut virt frönsk verðlaun Le Point og France Inter sem besta þýdda skáldsagan vorið 2022. Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin.

Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 20 tungumál.

Jón Kalman Stefánsson

Bókin er meistaralega vel skrifuð, textinn rennur létt og ljóðrænt áfram. Hinn einkennandi stíll Kalmans er hvarvetna til staðar, landslagið lifnar við og speglar atburðarás og tilfinningar sögupersóna…

Rósa María Hjörvar

Bókmenntaborgin – um Sögu Ástu

* * * * *

Fimm stjörnur. Fullt hús.

Maríanna Clara Lúthersdóttir

Morgunblaðið – um Sögu Ástu

Á heildina litið er hér um að ræða stórgóða bók sem heldur lesandanum fram á síðustu blaðsíðu, textinn sjálfur er fallegur og rennur áreynslulaust áfram, frásagnarstíllinn er skemmtilegur og söguþráðurinn sjálfur er heillandi.

Andri M. Kristjánsson

Víðsjá – um Sögu Ástu

Pin It on Pinterest

Share This