Eldarnir. Ástin og aðrar hamfarir

„Skáldin mega hjala um ástina, en ég þekki hana, hef séð hana að verki. Hún er ekkert annað en náttúruhamfarir.“ 

Jarðskjálftar skekja Reykjanesskaga, eldfjöllin eru vöknuð til lífsins eftir 800 ára hlé. Enginn þekkir þau betur en eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferilsins við stjórn almannavarna. En áferðarfallegt og fullkomið líf hennar lætur ekki lengur að stjórn.

Eldarnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín Björnsdóttur. Fyrri bækur hennar, Eyland og Hið heilaga orð, hafa vakið verðskuldaða athygli og verið þýddar á fjölda tungumála.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir

Það er svo til marks um vald Sigríðar á frásögninni að lesandinn fylgir höfundinum hiklaust í samtölum og vangaveltum um sprungusveima og hvikuhólf án þess að tapa nokkurn tímann þræðinum.

Maríanna Clara Lúthersdóttir

Víðsjá

Eldarnir er einstaklega vel skrifuð og ánetjandi saga … hættan sem býr bæði innra með söguhetjunni og í bullandi kvikuhólfum undir yfirborðinu er eins og sagan sjálf, áleitin og sterk.

Brynhildur Björnsdóttir

Fréttablaðið

[Eldarnir] er áberandi vel skrifuð.

Kolbrún Bergþórsdóttir

Fréttablaðið

Pin It on Pinterest

Share This