Dýralíf

 „Konu með mína starfsreynslu kemur fátt á óvart undir sólinni. Það er þá kannski helst maðurinn.“

 Sjöunda skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur gerist í vetrarmyrkri, rétt fyrir jól, þegar áður óþekkt lægð er í aðsigi. Á þriðju hæð við Ljósvallagötu býr ljósmóðir í íbúð sem hún erfði eftir einhleypa og barnlausa ömmusystur sína. Upp úr kassa undan Chiquita-banönum koma þrjú handrit sem ömmusystirin vann að, Dýralíf, rannsókn á því sem mannskepnan er fær um, Sannleikurinn um ljósiðog Tilviljunin.

 Dýralíf fjallar um leitina að mennskunni.

 Auður Ava hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin (2016) og bókmennta-verðlaun Norðurlandaráðs (2018) fyrir Ör og hin virtu Médicis-verðlaun í Frakklandi fyrir Ungfrú Ísland (2019). Skáldsögur Auðar Övu hafa verið þýddar á 33 tungumál.

 

Auður Ava Ólafsdóttir

Hrífur lesandann með sér inn í myrkrið og þaðan í ljósið.

Maríanna Clara Lúthersdóttir

Víðsjá

Bækur Auðar Övu Ólafsdóttur eru í senn einstaklega íslenskar og sammannlegar.

Financial Times

Bókin er með þeim allra fegurstu sem ég hef lesið […] enda hverfist bókin í kringum fegursta orð tungumálsins …

Ragnhildur Þrastardóttir

Morgunblaðið

Pin It on Pinterest

Share This