Bernska

Bernskan er löng og mjó eins og kista og fólk kemst ekki upp úr henni hjálparlaust.

Tove Ditlevsen (1917-1976) ólst upp í verkamannafjölskyldu á Vesturbrú í Kaupmannahöfn. Henni gekk vel að læra en langskólanám stóð henni ekki til boða. Hún byrjaði ung að skrifa kvæði og sögur og varð með tímanum elskuð og dáð af lesendum sínum, en fékk stundum harða útreið hjá gagnrýnendum fyrir að vera opinská um einkalíf sitt. 

Tove Ditlevsen þykir með merkari höfundum Dana og hefur notið vinsælda hjá mörgum kynslóðum. Verk hennar þykja gefa einstaka innsýn í líf kvenna á 20. öld og eru nú lesin sem sígildar bókmenntir. 

Bernska er fyrsti hlutinn í endurminningaþríleik Tove Ditlevsen, en Gift, lokahlutinn, er þegar kominn út í þýðingu Þórdísar Gísladóttur.

Pin It on Pinterest

Share This