Valgerður Ólafsdóttir

Eva Rún Snorradóttir

Valgerður Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1977 og ólst upp á Íslandi og í Danmörku. Hún er sálfræðingur og kennari að mennt og starfar sem skólasálfræðingur í Reykjavík. Hún hefur einnig kennt í framhaldsskólum og sent frá sér kennslubók í sálfræði.

Konan hans Sverris (2021) er fyrsta skáldsaga Valgerðar. Bókin fjallar um konu sem glímir við ofbeldi og eftirsjá, en einnig um þrautseigju og sátt. Hún hlaut skáldsagnaverðlaunin á Storytel Awards árið 2023.

Bækur eftir sama höfund