Takk fyrir að láta mig vita
Hádegishugleiðslan var önnur breyting sem ég hafði tekið illa í fyrstu en seinna meir lært að meta. Breytingar eru oft þannig; þær trufla mann fyrst en svo venst maður þeim og oft eru þær til bóta. – Úr sögunni Hlutverk.
Takk fyrir að láta mig vita hefur að geyma 13 sögur sem fjalla um hljóðláta grimmd ládeyðunnar, ástandsmat, hluti sem ekki er hægt að tala um og aðra smámuni.
Kápuhönnun: Ólafur Unnar Kristjánsson
ISBN:978-9935-488-02-2
144 bls.
Útgáfuár: 2016
Friðgeir Einarsson
Meðvitað látleysi þannig að maður flissar ofan í kragann.
Friðgeir Einarsson er einhver beittasti stílisti sem komið hefur fram í íslenskum bókmenntum afar lengi.
Á heildina litið er Takk fyrir að láta mig vita stórskemmtilegt smásagnasafn, oft og tíðum launhæðið en inn á milli er tekist á við miskunnarlausan raunveruleikann.