Perlusystirin

CeCe er ráðvillt og finnst hún ein í heiminum. Pa Salt – dularfulli auðkýfingurinn sem hafði ættleitt sex stúlkur og alið þær upp á eyju á Genfarvatni – hafði sagt henni að leita uppruna síns í Ástralíu og þangað heldur hún.

Hún ákveður að fara til Tælands yfir jólin þar sem hún á kunningja. Þar kynnist hún Ace, glæsilegum, leyndardómsfullum manni. Í lok dvalarinnar er tekin af þeim ljósmynd sem á eftir að draga dilk á eftir sér. 

Í Ástralíu fræðist CeCe um Kitty Mercer, prestsdóttur frá Leith í Skotlandi, sem 18 ára fór sem fylgdarkona auðugrar konu til Adelaide og verður ein voldugasta kona álfunnar, rekur perluiðnað í afskekktu sjávarþorpi og stýrir Mercer-fyrirtækjasamsteypunni.

Perlusystirin er fjórða bókin í þessum seiðmagnaða bókaflokki sem nefndur er eftir fyrstu bókinni, Sjö systur. Söguþráðurinn byggir lauslega á goðsögnum um stjörnuþyrpinguna Sjöstirnið. Bækurnar um systurnar sjö eru einhverjar vinsælustu skáldsögur í heimi.

 

Valgerður Bjarnadóttir þýddi úr ensku.

Lucinda Riley

Þessa leggur maður ekki frá sér, full af dramatík og rómantík.

Daily Mail

Riley er einn besti höfundur sinnar tegundar … sagnfræðin er með ágætum, ástarsagan hjartnæm og dulúðin töfrandi.

Historical Novel Society

Pin It on Pinterest

Share This