Karl Ágúst Úlfsson

Karl Ágúst Úlfsson er landsþekktur fyrir störf sín í þágu listar og menningar. Í gegnum tíðina hefur hann þýtt fjölda bóka, skrifað leikrit, samið sjónvarpsefni og kennslubækur svo fátt eitt sé nefnt. Árið 2014 gaf Karl út bókina Aþena, Ohio. Hann sendir nú frá sér bókina Átta sár á samviskunni sem inniheldur bráðskemmtilegar sögur um fólk úr ýmsum áttum.