Formaður húsfélagsins

Maður flytur í blokkaríbúð systur sinnar á meðan hann kemur undir sig fótunum.  Þetta átti að vera tímabundin ráðstöfun, en fyrr en varir er húsfélagið lent á hans herðum.

Formaður húsfélagsins fjallar um samlíf ókunnugra, nauðsynlegt viðhald fasteigna og margslungið tilfinningalíf íbúa fjölbýlishúsa.

„Dag einn birtist auglýsing sem vekur athygli mína. Í fyrirsögn er lesandinn spurður hvort hann langi til að verða kvikmyndastjarna. Mig langar ekki til þess en held samt áfram að lesa. Ég kemst að því að það er ekki verið að leita að stjörnum – þær hafa nú þegar verið ráðnar – heldur vantar svokallaða „bakgrunnsleikara“. Ég geri ráð fyrir að með því sé átt við leikara sem heldur sig í bakgrunni. Ég tel mig geta ráðið við það.“

Einnig fáanleg í kilju.

(Isbn 978-9935-488-41-1)

Kápuhönnun: Ólafur Unnar Kristjánsson
ISBN: 978-9935-488-19-0
205 bls.
Útgáfuár: 2017

Friðgeir Einarsson

Óborganlega fyndin saga. Mér fannst hún óskaplega skemmtileg … Mjög skemmtileg bók. Og vel skrifuð. 

Kolbrún Bergþórsdóttir

Kiljunni

Kiljan hrósaði Formanni húsfélagsins eftir Friðgeir Einarsson í hástert! Og svo hlógu þau og flissuðu! 

Formaður húsfélagsins í Kiljunni

Í stuttu máli mjög vel skrifuð saga. Og þrælfyndin.

Sigurður Valgeirsson

Kiljunni

Afbragðsvel skrifuð saga sem bregður upp fjölmörgum spaugilegum og hnyttnum mynd­ um úr hversdagsleikanum, ekki síst úr hversdagsleika húsfélaga í stórum fjölbýlishúsum.

Ágúst Borgþór Sverrisson

Pin It on Pinterest

Share This