Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir er manneskjan á bak við eina vinsælustu matarblogg-síðu landsins, Gulur, rauður, grænn & salt. Hún fær yfir 250 þúsund heimsóknir á mánuði og fylgjendur á Facebook eru 21.000.

„Matarbloggið Gulur, rauður, grænn & salt varð til í kjölfarið á dásamlegri ferð til Barcelona haustið 2012. Ég elska mat í allskonar litum, því feiri sem litirnir eru því betra. Þannig er hægt að ná fram sumarstemningu hvernig sem viðrar – að minnsta kosti í hjarta. Ég vil því elda litríkan mat og er hrifin af mat hvaðanæva að úr heiminum. Leiðarljósið hefur þó alltaf verið að hafa uppskriftirnar einfaldar og á allra færi. Ég reyni að forðast öll flækjustig; hráefnin eru aldrei mjög mörg í hverri uppskrift og það er auðvelt að verða sér úti um þau.

Gulur, rauður, grænn & salt

Pin It on Pinterest

Share This