Magnús Guðmundsson

Magnús Guðmundsson

Magnús Guðmundsson

Magnús Guðmundsson (f. 1968) er bókmenntafræðingur að mennt sem er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann starfaði sem tæknimaður í Þjóðleikhúsinu frá unglingsaldri og fram eftir tvítugsárunum þegar hann sneri sér að auglýsingamennsku. Þar fékkst hann við hugmynda- og textavinnu um árabil, auk þess að snúa sér að eigin ritstörfum og 2001 sendi hann frá sér skáldsöguna Sigurvegarinn. Magnús sneri sér síðar að blaðamennsku og starfaði m.a. sem ritsjóri menningar á Fréttablaðinu, auk þess að sinna verkefnum fyrir RÚV um þessar mundir.

Árið 2018 sendi Magnús frá sér bókina Stöngin út, ævintýralegt líf Halldórs Einarssonar í Henson.

Haustið 2021 sendi hann frá sér spennusöguna Hægt og hljótt til helvítis, í útgáfu Benedikts.

Bækur eftir sama höfund

Hægt og hljótt – til helvítis

Hægt og hljótt – til helvítis

Allt hefur fyrr eða síðar sínar afleiðingar.

Fjölskylduföður dreymir um góð efni og glæsta framtíð fyrir fjölskylduna, kappsfullir bankamenn leggja allt að veði nema eigin hagsmuni og miðaldra fasteignasali fer í sund í leit að beta lífi en finnur dauðann og djöfulinn.

Þegar rannsóknarlögregluþjónarnir Aron Freyr Einarsson og Jóhanna Gunnarsdóttir koma á vettvang morðs við Bergstaðastrætið, verður þeim fljótlega ljóst að hér er enginn venjulegur glæpur á ferðinni. Eitthvað djúpstætt og fádæma illviljað virðist liggja að baki verknaðinum hjá morðingja sem gæti mögulega haldið ótrauður áfram á sömu braut.

Hér er á ferðinni spennusaga sem tekst á við íslenskt samfélag þar sem reiði, græðgi, biturð og hatur ólmast eins og dýr í búri sem brýst að endingu út úr skúmaskotum kommentakerfanna.

Þetta er fyrsta spennusaga höfundar sem hefur lengi fengist við blaðamennsku.

Bækur eftir sama höfund