Eiríkur Guðmundsson

Eiríkur Guðmundsson

Eiríkur Guðmundsson (f. 1969, d. 2022) var landskunnur þáttastjórnandi á Rás 1 og rithöfundur, búsettur í Reykjavík.

Fyrsta skáldsaga hans, 39 þrep á leið til glötunar, kom út árið 2004 og síðar skrifaði hann skáldsögurnar Undir himninum1983Sýrópsmáninn og Ritgerð mín um sársaukann. Árið 2008 gaf Eiríkur út bókina Nóttin samin í svefni og vöku um skáldskap Steinars Sigurjónssonar og ritstýrði heildarútgáfu á verkum hans.

Ofan á allt þetta skrifaði Eiríkur fjölda tímaritsgreina, ritdóma og útvarpspistla í gegnum tíðina.

Bækur eftir sama höfund

Ritgerð mín um sársaukann

Ritgerð mín um sársaukann

Ástarsaga um fölar minningar, um kynslóðir sem bugast og neyðast til að játa uppgjöf sína, harmleikur sem ekki verður færður í orð. Sársauki sem er rýtingur í hjarta okkar allra. En þessi ritgerð er líka ein lítil, græn rós.

Ritgerð mín um sársaukann er fimmta skáldsaga Eiríks sem er landskunnur þáttastjórnandi á Rás 1.

Kápuhönnun: Ólafur Unnar Kristjánsson
ISBN: 978-9935-488-33-6
272 bls.

Bækur eftir sama höfund